Brandari ársins ...

... er ekki að eldflaugar Írana nái ekki til Evrópu.

Brandari ársins er að hér er maður sem hélt að Bush-stjórnin hefði tiltrú einhvers!

/point /laugh


mbl.is Larijani: Evrópa verður aldrei skotmark íranskra eldflauga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskhyggja

Þótt viðleitni geti komið viðræðum áleiðis þá þarf vilja þjóðanna sjálfra til að koma á varanlegum friði.  Sem stendur vilja báðir aðilar bara drepa sem flesta hinna.  Hjá Palestínumönnum er þetta það slæmt að verið er að ala upp sjálfsmorðsbörn.
mbl.is Ingibjörg Sólrún vill heimsækja Miðausturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerðist hér eiginlega?

Ég vil nánast flokka þessa frétt sem ekki-frétt.

Hér vantar með öllu ástæður sýknudóms.  Ég hef skrifað um meðferð kynferðisbrota á þann veg að dómskerfið bregðist fórnarlömbum.  Það einfaldlega hlýtur að vera tilfellið hér.  Eftir skýrslutökur, rannsókn og meðferð saksóknara þá er lagt upp í dómsmál.  Var það svo illa undirbúið að dómari bara sá ekki málið?  Var framburður vitnis óstöðugur? Vantaði sönnunargögn eins og í svo mörgum málum í þessum málaflokki? Hvar vantaði upp á vandvirkni?

VIÐBÓT:

Svo virðist sem ég hafi lesið einhverja styttri útgáfu af fréttinni.  Hún var 4 línur og gaf ekki neitt til kynna hvernig málum var háttað. 


mbl.is Fjórir piltar sýknaðir af ákæru fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitleysa

Hvaða barnaskapur er þetta í stjórnarandstöðunni?  Hvaðan átti stuðningurinn að koma?  Stjórnarandstaðan verður að vanda málflutning all verulega ef eitthvert markvisst aðhald á að vera við þessa mjög svo sterku stjórn.  Að andmæla öllu verður bara ekki eftirtektarvert.

Ef á að spila þetta eins og leik þá verður stjórnarandstaðan að fara að kortleggja hvar einhverja fylgismenn er að fá meðal stjórnarliða og velja andóf þar sem hægt er að fá einhver atkvæði hinum megin girðingar. 


mbl.is Vildu vísa frumvarpi um breytingar á þingsköpum frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurkæling

Ég var með samlíkingu í gær á blogginu.  Hagkerfið er ofurkælt.  Er eitthvað til ráða annað en að fella vexti og skera niður í ríkisútgjöldum?  VERULEGA skera niður ríkisútgjöld.  Minnst 30% niðurskurður.

Það myndi skella á holskefla sem myndi fara illa með marga en ég er ekki svo viss um að það myndi ekki gerast samt, bara á annan máta.  Vandinn væri að þá myndi það gerast vegna þess að útflutningsgreinarnar væru í rjúkandi rústum og ekki væri hægt að bregðast við með neinu.

Góðir leiðtogar taka óvinsælar ákvarðanir en halda samt völdum.  Þeir ná að selja hugmyndina um að taka meðalið, án sykurs. 


mbl.is Óstöðugleiki fremur regla en undantekning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að flækjast í orðum

Sem sagt, til að þýða fyrirsögnina yfir á íslensku: 

Ekki verður komist hjá því að gera annað það sem hingað til hefur verið gert við ráðgjöf fiskifræðinga.

Freudian slip anyone?


mbl.is Óhjákvæmilegt að bregðast við tilmælum fiskifræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er bólan sprungin?

Ég veit ekki hvort ég er meira í sjokki yfir fréttum dagsins eða þeirri staðreynd að fréttin er ekki lengur á forsíðunni.

Í athugasemd á púkablogginu  líkti ég nefnilega efnahagsástandinu á Íslandi við ofurkældan vökva sem þyrfti ekki meira til en smá hristing til að losa um innbyggða hreyfiorku, hita umhverfi sitt og fasabreytast í fast form.

Ég vona að þið séuð búin að fá launahækkunina sem þið voruð að vonast eftir.  Það gæti verið langt að bíða þeirrar næstu. 


mbl.is Segja aðgerðir Seðlabanka skaða atvinnulíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorgmæddur

Það færist alltaf yfir mig viss sorg þegar ég les um nauðganir.  Ekki er nóg um að einstaklingi hafi verið nauðgað, eflaust er erfitt að taka ákvörðun um að kæra.  Sönnunarbyrði í nauðgunarmálum er á ásakandanum ef marka má tíðni sakfellinga og orðalags sem allt of oft sést í sýknudómum: "gegn staðfastri neitun hins ákærða".

Ég veit ekki hvað það þýðir annað en að dómari hafi trúað sakborningi en ekki fórnarlambinu.

En svo eru líka dæmi um hið andhverfa.  Tíðræddur var sektardómur yfir ungum manni ef ég man rétt frá Húsavík.  Almannarómur var að ekkert væri tækt í kærunni en þetta hafi einhvernvegin  rúllað í sektardóm af sjálfu sér.

Ég vona samt að aukinn fréttaflutningur sé til marks um fleiri ákærur en ekki að ofbeldi sé í raun að aukast.  Nóg var um það fyrir. 


mbl.is Fjögur kynferðisbrotamál í rannsókn á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir af ráðgjöf Hafró

Er einhver með aðra tillögu að ástæðu gengisfallsins?  Ég veit um lítinn púka sem gleðst yfir þessum fréttum.  Kannski að það sé von fyrir útflutningsgreinarnar eftir allt saman.
mbl.is Gengi krónunnar lækkar um 1,16%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er eins gott fyrir íslenskt hagkerfi

Það er veðjað djúpt á álbræðslur.  Mesti vöxtur í íslensku atvinnulífi hefur með álverin að gera.  Ef eftirspurnin eykst þá er möguleiki á því að álið geti verið hækja meðan við komum atvinnulífinu inn í 20. öldina.

mbl.is Spá tvöföldun eftirspurnar eftir áli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband