7.6.2007 | 14:51
Uppspretta raunhæfra aðgerða
Tesco var með góða hugmynd. Til að breyta hlutum þarf að koma til ný mælistika sem hjálpar neytenda að velja vöru í samræmi við umhverfishugsjón viðkomandi. Ég held að fæstir séu viljandi sóðar gagnvart andrúmsloftinu. Ef fólk vissi hvað þarf til þá myndu margir breyta háttum sínum. Athyglivert að sjá hvort ekki heyrist aftur "Veljum Íslenskt", nú með þá hugsjón að leiðarljósi að nærmarkaðurinn hlýtur að vera kolefnisódýrari.
Uppspretta lausnarinnar verður að vera raunhæf á frjálsum markaði.
Leiðtogar G8 sættast á minnkun á útblæstri gróðurhúsalofttegunda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.6.2007 | 13:52
Ágreiningur innan Samfylkingarinnar
Var ekki Viðskiptaráðherra að tala um að ekki væri tækt lengur að reka niðurgreidda lánastarfsemi í samkeppni við almennan markað?
Össur hægri, Jóhanna vinstri? Veit höfuðið hvað hendurnar gera?
Félagsmálaráðherra: Íbúðalánasjóður verður ekki einkavæddur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2007 | 09:18
Disney vex úr grasi
Walt Disney Studios semur við Stan Lee | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2007 | 16:01
Ráðherra/Alþingismaður/Viðskiptavinur/Bróðir/Líffræðingur
Fogh ber fyrir sig tjáningafrelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2007 | 14:25
Blaðamaður handtekinn fyrir að spyrja spurninga
6.6.2007 | 14:14
Darwinismi
Allar vörur hjá Tesco verða kolefnismerktar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2007 | 13:54
Alveg magnað
Hér er stýritæki á hagkerfi sem virkar. Aðallega vegna þess að um er að ræða hagkerfi sem tækið virkar á. Íslenska þensluhagkerfið er ekki hægt að hemja með stýrivöxtum. Það hafði einn vinnufélagi minn á orði hér um daginn að erfitt væri að hemja eftirspurn eftir lánsfé með okurvöxtum, landinn væri svo framkvæmdaglaður. Hann taldi það vera verðbólguhvetjandi því að ef landinn lendir í vandræðum með afborganir þá væri bara unnið meira.
Ég vildi leiðrétta hann aðeins með þetta. Verðbólgan á sér ekki stað í þessu tilfelli. Ég vænti þess að við aukavinnuna verði til einhver verðmæti sem einhver keypti. Verðbólgan á sér stað þegar einstaklingur fær meiri pening en það verða ekki til nein umframverðmæti við launahækkunina. Einhverjir myndu spyrja hvort launahækkanir ættu því aldrei rétt á sér en jú, ef starfsmaður nær færni og eykur afköst sín eða gæði starfsins með tíma er sjálfsagt að hann hækki í launum. Ég vona að flestir séu þess eðlis að reyna að gera betur með tímanum og því sé eðlilegt að fólk hækki í launum umfram verðbólgu.
Nei, háu stýrivextirnir gera ekkert annað í íslensku hagkerfi en að auka lánsfjármagn með tilkomu Jöklabréfa og spákaupmennsku með myntina.
Seðlabanki Evrópu hækkar vexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2007 | 13:45
Hafnið fjölmiðlunum sem sýna svona
Það er rétt leiðin til að stýra hvað er sýnt og hvað ekki. Ef fólki finnst fyrirfram að eitthvað efni eigi ekki erindi við almenning en fjölmiðill birtir það engu að síður, kjósið þá með veskinu og hunsið þann fjölmiðil.
Það er of seint fyrir þann sem fyrir skaðanum verður, en skv. Darwin þá lærist þetta fyrir rest.
Svo er allt annað mál að mannskepnan er ekki búin að læra þetta ennþá. Svo virðist sem meirihluti tegundarinnar er með ólæknandi gægjuþörf sem getur af sér skrýmsli eins og Paris Hilton og stórslysamyndir. Ég treysti mér ekki einu sinni sjálfur til að segja að ég myndi ekki horfa á Skjá Einn í viku ef þeir myndu sýna þessa heimlidarmynd.
Heyrðu! þegar ég fer að hugsa um það þá horfi ég bara ekki á Skjá Einn. Eða sjónvarp yfirleitt!
Þar dó sú hugmynd.
Synir Díönu prinsessu vonsviknir út í Channel 4 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2007 | 07:49
"I am the Decider"
Einhvern vantar tengingu við raunveruleikann.
"Kæri Blair. Herra Bush er ekki á jörðinni sem stendur og þú virðist vera að fljóta upp á við. Aðrir einstaklingar hafa tapast mannkyninu fyriri tilstilli þess að reyna að ná hugsun hans á raunverulegra plan og okkur þykir vænt um þig. Eftir allt saman þá varst þú tel ég nytsamlegur sakleysingi en ekki upphafsmaður átaka í Írak, svona svipað eins og Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, vantaði aðeins upp á sjálfstæða hugsun á ögurstund."
Ég fæ örugglega fleiri tækifæri til að grínast að Bush. Nuff said.
Blair segist geta sannfært Bush | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2007 | 07:18
... og er enn ekki fallinn ...
Þessi síðasti plástur sem settur var á WoW fór frekar illa með leikinn. Epic reyndi við Gruul í gærkvöldi og gekk illa. Sumir voru að missa tengingu við og við og skipti ekki máli hvort viðbætur væru gerðar óvirkar, spilarar endurræstu vélar sínar og könnuðu sérstaklega hvort beinir væri í lagi.
Verst var tilraunin þar sem Gruul var kominn niður fyrir 1% þegar Tank lét lífið og Gruul byrjaði að rífa hópmeðlimi í sig í einu skoti hvern. Hann var á einu prósenti í um 15 sekúndur, ónákvæm mæling sagði 4947 hp eftir. Það jafngildir einum stórskaða (komdu með betri þýðingu á crit, I dare ya) galdri eða tveimur venjulegum. Þar sem hópurinn samanstóð af 14 skaðvöldum yfir 8 mínútna bardage, skjótandi galdri á 2-3 sekúndna fresti þá sést hvað þetta var ótrúlega tæpur ósigur.
Annar plástur í kvöld, vonandi leiðréttir hann þetta glundur sem við fengum síðast.