Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hinir frambjóðendurnir

Íslenska pressan er ekkert skárri en bandaríska pressan.  Hvar er umfjöllun um Ron Paul og Mike Gravel?
mbl.is Giuliani og Clinton enn með forustu; Thompson gæti aukið fylgið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaskapur

Tölum saman.  Það leysir málin.

mbl.is Ísraelsher felldi þrjá Palestínumenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skautun

Hvað er það í velmegunarþjóðfélagi nútímans sem býr til atvinnumótmælandann?  Hvar sem leiðtogar iðnríkjanna vilja skjóta saman nefjum sínum brjótast út hatrömm mótmæli, ja, nema á Íslandi þar sem landanum brá aðeins við þegar reistar voru víggirðingar kring um hótelið þar sem fundurinn átt sér stað.  Í sporum leiðtoganna þá hefði kannski verið eðlilegt að segja í lok fundar "Ja hérna, hér lá ekki lögregla í sárum eða á banabeði eftir fundinn.  Hér hittumst við aftur!"  Nei, það virðist vera sem þeir séu það fjærri raunveruleikanum utan víggirðinganna að það eitt og sér skipti ekki máli.

Og þar grunar mig verður atvinnumótmælandinn til.  Sá einstaklingur er nefnilega vel hugsandi einstaklingur sem tekur eftir því hvernig leiðtogarnir fara að lifa öðru vísi veruleika og ef leiðtogi er ekki í tengslum við veruleika fólksins þá getur hann ekki verið að taka góðar ákvarðanir með lýðinn í huga.

Þetta var væntanlega ofarlega í huga Sókratesar þegar hann taldi að stærsta borg sem væri stjórnanleg sem eitt kerfi væri um 100.000 manns.  Reyndar var hann kannski ekki að hugsa um borg svo mikið sem pólitískt samfélag, en þaðan er orðið sprottið úr grísku, Polis er borg og Politics eru því málefni borgarinnar. 

Reykjavík er því ef Sókrates hafði rétt fyrir sér á mörkum þess að tapa þeirri nánd sem einn leiðtogi þarf að hafa við fólk sitt til að teljast einn af þeim.  Munum við á næstu árum taka eftir breytingum á okkar Polis? 


mbl.is 150 lögreglumenn hafa særst í átökum við mótmælendur í Rostock
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hverjum kemur þetta á óvart?

Ég hef ekki handbærara tölur um þetta, kannski einhver geti komið með þær fram. Er það ekki lenska hjá Sjávarútvegsráðherrum að fara ekki eftir ráðgjöf Hafró?  Er ekki venjan sú að veiða svona 15-25% framyfir ráðgjöfina?  Og nota bene það er það sem er veitt og vigtað.

Það kæmi mér stórkostlega á óvart ef það verður einhver breyting á núna. Kannski er lærdómurinn sem Hafró tekur frá þessu slíkur að þeir geti mælt með kvóta þessum 15-25% lægri til að leiðrétta módelið sitt.  Þ.e. taka tillit til hvernig framkvæmdavaldið fer með ráðfjöfina.  En kannski eru þeir bara of miklir vísindamenn í eðli sínu og hugsa eins og yfirmaður NASA, það er ekki þeirra að túlka gögn eða setja fram stefnu, þeirra er bara að afla gagna. 


mbl.is Sjávarútvegsráðherra: Þurfum að ræða málin af yfirvegun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptum út aðalatvinnuvegi

Það er lifandis löngu kominn tími til að hugsa til framtíðarinnar.  Íslenskt hugvit hefur sýnt sig að vera frjótt og öflugt.  Þessi fáu fyrirtæki sem ná upp úr sprotanum hafa sýnt sig í að vera góð tekjulind.  Til þess að upplýsingatæknifyrirtæki nái að spjara sig þá þarf til betri tengingar við umheiminn.  Cantat-3 er löngu orðinn of þröng gátt til vesturheims og ekki er verjandi að fara að leggja annan kapal til Skotlands þegar Farice-I er ekki notaður nema að litlu leyti.  Það er nefnilega tvennt sem skiptir þarna máli annað en breiðari gáttir.  Annað er það að stærstur hluti af internetinu liggur í BNA annars vegar og hins vegar þá þarf að skapa meira öryggi um gagnaflutninga.  Þess vegna er mikilvægt að tengja bæði vestur og austur um haf.

Kannski má líta sem svo á að við drögum enn tekjur úr sjó, ja eða drögum tekjur um sjó  gegn um ljósleiðara ;)


mbl.is Hafró leggur til þriðjungs samdrátt í þorskafla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðingar

Ég leyfi mér hreint út sagt efast um að bandaríkjamaðurinn hafi sagt "I didn't know which way the wind was blowing"?

Er ekki einhver skylda að hafa þýðingar beinna tilvitnanna eins nálægt orðum viðkomandi en ekki svona  umsnúningur?  Nú kann ég að hafa rangt fyrir mér.  Ef til vill hafði hann eitthvað slíkt orðfæri.


mbl.is Yfirmaður NASA ekki viss um að bregðast þurfi við loftslagsbreytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið besta mál

Fólk sem brýtur jafn bindandi samning og gistibókun er eins seint og í þessu tilfelli var gert á ekki að geta gert það refsilaust.


mbl.is Fallast á sáttagreiðslu vegna afboðunar klámráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóst satt best að segja við öðru

Ég bjóst við því að kjósendur Samfylkingar myndu ekki kunna forystunni þökk fyrir að leyfa Sjálfstæðisflokknum að halda völdum.  Kannski eru Samfylkingarkjósendur á bleiku skýi þessa dagana, haldandi það að Samfylkingin sé í leiðandi hlutverki.  Eins og ég bloggaði um Össur þá virðist vera sem Samfylkingarskútan væri hægrisinnaðri en við fyrstu sýn virtist þá verður athyglivert að fylgjast með þessari þróun.  Það er bara allt annað hljóð í leiðtogunum heldur en í stjórnarandstöðu.  Meira að segja ISG-óþolið í mér hvarf.  Það er eins og kvart-og-kvabb tóninn hafi bara horfið með öllu úr henni og þá er hún bara merkilega þolanleg.  Af stjórnarandstöðuleiðtogunum þá kemur Guðjón Arnar best út. Hann er ekkert að væla yfir þessu.  Það er hins vegar alvarlegur holur tónn í greyinu honum Guðna.  Það er ekki eins og hann hafi að vera að starfa með helmingnum af ríkisstjórninni í sátt og samlyndi fyrir viku síðan.  Nei, nú er allt handónýtt sem ríkisstjórnin gerir.  Hvenær fer þetta fólk að átta sig á því að sumir okkar sjá í gegn um Súfismann?  Hvenær fáum við að sjá stjórnarandstöðuleiðtoga sem þora að vera SAMMÁLA ríkisstjórn af og til?

Ég held nefnilega að Al Gore hafi rétt fyrir sér.  Skoðanir og framkvæmdir stjórnmálamanna skipta engu máli.  Það er mikilvægast í stjórnmálum að halda völdum og þú heldur völdum með því að sannfæra meirihlutann um að þú sért með gott mojo.  Þetta með meirihlutann.  Þekkir þú meðalgreint fólk?  Mundu það að hinn helmingurinn er samkvæmt skilgreiningu heimskari en það.  Við erum í vondum málum.


mbl.is Ríkisstjórnarflokkar bæta við sig fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er bara einn hlekkur við hæfi

Lýsing á Bush
mbl.is Umhverfisverndarsamtök segja hugmyndir Bush hlálegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnt til BNA

Málefni fjármála flokkanna virðist ætla að stefna í ameríska farveginn.  Þar á bæ snýst allt um það að afla fjármagns til auglýsinga þannig að hægt sé að selja almenningi hugmyndir stjórnmálaskoðana frambjóðandans. Ég las alveg skelfilegan útdrátt úr bók Al Gore, The Assault on Reason, skelfilegan að því leytinu að þar endurspeglaðist að Súfisminn er að sigra í heiminum í dag. Fólk hugsar ekki og lætur sjónvarpið um að fóðra sig á hvað það eigi að borða, klæðast, gera, hugsa. Ég býst við því að MMORP spilarar séu líflegri heldur en aðrir í nútímaþjóðfélagi. Þeir eru hið minnsta að taka virkan þátt í skemmtun sinni. Flestir aðrir eru að láta imbann fóðra sig 4 tíma á dag.


mbl.is Hverjir auglýstu mest?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband