1.6.2007 | 14:32
Ætlaði - Ætluðu - óboj
Meinti glæpamaðurinn, meinti verknaðurinn, ætlaða vatnið, ég ætla að vona það að hægt verði að spyrna við þessari þróun á íslensku réttarfari. Síðan Briggs slapp á tækniatriði hef ég dregið sýknudóma oftar í efa. Þar liggur hundurinn grafinn. Ég heyrði af bandarískum lögfræðingi í heimsókn hjá íslenskum lögspekingi. Sá íslenski útskýrði hvernig réttarfarið væri á Íslandi (rúm 10 ár síðan) og sagði svo: "Interesting. So the judge, the prosecutioner and the defence sit down and actually try to discover the TRUTH? That would never happen in the adversarial system."
Höfnum súfismanum. Tölum hreint út. Maðurinn var með fíkniefni.
Svo er allt annað mál hvort fíkniefnin sem hann hafði undir höndum ættu að vera refsiverð. Þar aðhyllist ég þá skoðun að Bannárin hafi reynt að segja okkur eitthvað.
Grunaður fíkniefnasali handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.