Klukkutíma of löng

Skelfilega var mér farið að leiðast seinni helming myndarinnar.  Ég get ekki meðtekið fleiri en eina útrúlega leið til að skjóta sér upp 50 metra upp í loftið og lifa ferðina af ásamt því að bjarga öllu í leiðinni.

Ég er klárlega farinn að eldast því þegar finna átti eitthvað til að horfa á í gærkveldi með fjölskyldunni þá fannst mér þær myndir sem úr var að velja ekki hafa upp á neitt nýtt að bjóða.

Fyrsta Pirates myndin var í reynd sú besta og sannar í raun þessi syrpa það sem Matrix tókst líka.  Það er ekki sérlega góð hugmynd að framleiða tvær myndir í einu og hluta niður á tvö ár. 


mbl.is Sjóræningjarnir vörðu efsta sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband