Færsluflokkur: Dægurmál

George Carlin látinn

Mikilmenni er horfið á vit feðranna.  George Carlin var einhver sá heimspekilegasti stand-up grínari sem ég hef heyrt í og kann ég honum mikla þökk fyrir að hafa opnað huga minn fyrir eigin fordómum.  Ég mæli með þessu safni af úrklippum en ætla að innfella eitt uppáhaldsatriðið mitt. 


mbl.is Grínistinn George Carlin er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumkunarvert

Ég get ekki annað en hugsað til þeirra saklausu manna sem sitja jafnvel á dauðadeild.  Nú tel ég vita að henni finnst þetta afar slæmt, og jafnvel eins og að lífinu sé bara lokið.  Vinkona mín í vinnunni var sama sinnis og ég.  Paris þarf að eyða 23 tímum ein í klefa sínum og værum við hálf fegin því að gera það í 45 daga, ef við fengjum bara nóg að lesa.  Ég kæmist kannski yfir einhver verka Plató í vistinni.  Ég var hins vegar búinn að stinga upp á leslista fyrir Paris.
mbl.is Hilton send aftur í fangelsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver þorir að veðja ....

.... að læknirinn er geðlæknir/sálfræðingur og ástand sjúklingsins er innilokunarkennd?

mbl.is Parísi Hilton gert að mæta aftur fyrir dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

*snökt* *snökt*

Cry me a river.

Mér finnst drepfyndið að afdankaður þungarokkari hafi tekið sig til og skorað á yfirvöld að láta hana afplána allan dóminn.  Einnig finnst mér fyndið að hún skuli taka Biblíuna með sér.  Hún ætti kannski frekar að taka eitthvað með betri siðferðisboðskap.  Hér eru nokkrar bækur sem hún ætti auðveldara með að skilja og hafa alveg örugglega ekki verri siðferðisboðskap en Biblían:

  1. Litla Gula Hænan - Vinnan göfgar manninn
  2. Rauðhetta - Varist ókunnuga menn sem éta ömmur
  3. Þrír litlir Grísir - Pabbi/Stóri bróðir vita alltaf best
  4. Gilitrutt (Rumplestiltskin) - Það kemur að skuldadögum - og stundum vilja þeir taka myndir

mbl.is Paris Hilton hefur hafið afplánun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband